|
Written by Administrator
|
|
|
|
Monday, 11 December 2006
Í nýlegu viðtali á vefnum Variety.com við George Lucas kemur fram að hann telji að of mikil áhætta sé við gerð kvikmynda. Hann segir að kvikmyndir sem geti kostað um 200 milljónir dollara séu mjög áhættusamar. Hann hefur meiri áhuga á að gera sjónvarpsþætti og segir að hægt sé að gera 50 - 60 tveggja tíma langar kvikmyndir fyrir sömu upphæð.
Annað sem gæti komið inn í þessa ákvörðun er að bæði neysla fólks og tæknin er að breytast. Ný gerð af sjónvarpsskjám, eða svokallaðir High Definition sjónvarpsskjáir hafa hærri upplausn og bjóða upp á betri gæði en áður hefur verið mögulegt. Stafræn kvikmyndatækni býður upp á mikla möguleika við gerð nýrra sjónvarpsþátta og verður áhugavert að sjá hvort nýju Star Wars þættirnir munu geta nálgast kvikmyndirnar í gæðum.
Í viðtalinu kemur fram að hann telur að litlar kvikmyndir og net dreifing sé framtíðin. |
| Last Updated (
Monday, 11 December 2006 ) |