arrowstarwars.is arrow Fréttir arrow Star Wars aðdáendur arrow Star Wars og frásagnargerð Monday, 06 September 2010  


 
Yfirlit
 starwars.is
 Fréttir
 Tækni
 Saga
 Persónur
 Tenglar

Tilvitnun

Ready are you? What know you of ready? For eight hundred years have I trained Jedi. My own counsel will I keep on who is to be trained. A Jedi must have the deepest commitment, the most serious mind.
-Yoda


Star Wars og frásagnargerð   PDF  Print  E-mail 
Written by Administrator  
Thursday, 11 May 2006
Star Wars myndirnar eru ein af vinsælustu geimævintýramyndum allra tíma. En hver er galdurinn á bakvið myndirnar, hvað er það sem gerir þær svo góðar og vinsælar. Star Wars myndirnar byggja á ákveðnri frásagnarbyggingu, sem er þekkt í öllum helstu ævintýrasögum bæði nýjum sem gömlum. Þessi frásagnarbygging styðst við ákveðina goðsögulega uppbyggingu sem byggir á ákveðnum stofngerðum.

Star Wars sækir efni í margar sögur, enn eina helst sækir hún úr smiðju goðsagnarhöfundarins Joseph Campbell, sem skrifaði um ferð hetjunnar í bókinni "The Hero with a thousand faces". Í bókinni eru margar ævintýrasögur greindar og finna má sameiginlegan þráð með þeim flestum. Hægt er að lesa frekar um hvernig þessi þráður er aðlagaður að kvikmyndum í bók handritarhöfundarins Christopher Voglers "The Writers Journey".Bókin hefur einnig komið út á íslenskri þýðingu og heitir "Ferð höfundarins".Í bókinni er Star Wars meðal annars greind eftir þræðinum sem fram kemur í bók Joseph Campbells.

En hvernig er þá hægt að skrifa sögu eins og Star Wars, einhvers staðar verður að byrja og hægt er að skoða aðrar sögur og aðlaga þær að formi geimævintýramyndar. Nokkrar þekktar myndir sem Star Wars byggir á eru gamlar vísindaskáldsögur og japanskar samurai myndir. George Lucas skoðaði einmitt myndir eins og Flash Gordon og myndir eftir kvikmyndaleikstjóran Akira Kurosawa Hidden Fortress.

Enn er það allur galdurinn sem er á bakvið myndirnar, eða er það ákveðið sjónarhorn sem myndirnar eru sýndar frá sem gerir þær svo góðar.Hvernig sagan er spunnin til þess að koma ákveðnum skilaboðum á framfæri gæti verið hluti af þeim galdri við að segja söguna.Á vefnum Jitterbug er hægt að finna frekari upplýsingar um kvikmyndir og bækur sem Star Wars myndirnar gætu hafa byggt á og hverju George Lucas gæti hafa byggt á þegar hann skrifaði myndirnar. Fyrir kvikmyndagerð í vísindaskáldsögu stil, þá býður Ísland upp á ákveðna möguleika þar sem hægt væri að nota íslenskt landslag sem bakgrunn.

Last Updated ( Thursday, 11 May 2006 )


Nýtt á vefnum
Landspeeder
Imperial Probe Droid
TIE orrustuflaug
Palpatine
Y-Wing

 
top