Wednesday, 05 April 2006
Marga hefur eflaust dreymt um að búa til sína eigin Star Wars mynd, en ekki vitað hvernig ætti að byrja. Mikil gróska er í stuttmyndagerð, þar sem tækninni hefur fleygt langt fram og stafrænar upptökuvélar orðnar næstum almenningseign. Þessi þróun hefur leitt til byltingar, þar sem gæði mynda er orðinn mjög góð miðað við það sem áður þekktist. Margar Star Wars aðdáenda myndir hafa verið búnar til með stafrænum upptökuvélum og svo klipptar í tölvu.
Tölvur bjóða upp á góða möguleika til að búa til samskonar brellur og eru í kvikmyndunum. Eitt dæmi eru geislasverð, sem hægt er að búa til með forriti eins og Adobe Premiere. Á netinu er hægt að finna leiðbeiningar fyrir hvernig er hægt að nota Premiere til þess að búa til geislasverð. Tæknin sem er notuð til þess að búa til geislasverðin í kvikmyndunum nefnist Rotoscoping.
Eitt dæmi um hvernig er hægt að búa til geislasverð með þessari tækni er að finna á síðunni http://www.alienryderflex.com/rotoscope/
Á þessari síðu er hægt að sjá hvernig hægt er að setja inn geislasverð í eftirvinnslu myndar með forritunum Adobe Premiere og Photoshop.
Þar sem dýrt getur verið að gera Star Wars aðdáendamynd í fullri lengd, þá eru svokallaðar stuttmyndir eða spoofs mjög vinsælar á meðal aðdáenda. Spoofs eru stuttmyndir sem gera góðlátlegt grín að myndunum í Star Wars búningi. þó nokkrar þekktar Star Wars Spoof myndir eru "Pink Five","Star Wars Gangsta Rap" og "Jedi Hunter".
Hérna á Íslandi hefur líka verið nokkuð um að Star Wars aðdáendur hafa slegið saman höndum og unnið að Star Wars stuttmyndum. Ein sú þekktasta er Episode X:Lords of the Sith. Á vefnum starwarsx.tk er hægt að sjá meira um myndina ásamt trailers, og annað efni sem tengist henni. Myndin er eflaust hvatning fyrir aðra íslenska Star Wars aðdáendur til þess að gera sína eigin Star Wars Spoof mynd. |